Hélt upp á afmælið með nektarmynd á twitter:
Söngvarinn Robbie Williams hélt upp á 41. árs afmæli sitt í gærdag með því að setja nektarmynd af sér á twitter. Í færslu með myndinni gaf Robbie í skyn að hann ætlaði að toppa Kim Kardashian í að „sprengja“ netið með nektarmynd.
Sem kunnugt er af fréttum fór mynd af búttuðum og olíusmurðum rassi Kim Kardashian víða um netið fyrir nokkru síðan. Sjálf sagði Kim þegar botn hennar birtist í öllu sínu veldi að hún ætlaði að „sprengja“ netið með myndinni.
Robbie Williams hefur notið mikillar velgengi á undanförnum árum eða frá því hann hætti með strákasveitinni Take That. Til dagsins í dag hefur hann selt um 50 milljónir eintaka af plötum sínum og er það söluhæsti einstaki tónlistarmaður í sögu Bretlands.